Ađalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Atburđarteljari

Atburđarteljari

Atburđarteljari

Atburđarteljari

Innskráningar kubbur

Teljari

Nýtt blogg!!Elín Dögg Arnarsdóttir

Jæja, búin að koma börnunum í bælið, þannig að ég ákvað að blogga smá..

Ég hef samt ekki eins mikið að blogga um eins og síðast, en hef þó eitthvað.

Nú er afmæli hjá okkur hjúum á næstuni, og mig langar rosalega að halda uppá þau, þar sem við verðum 25 ára (djö er maður orðin gamall)

Og hugmyndin mín er sú að hafa þetta inní helli í fjallaskála, en finst pínu dýr leigan á skálanum, þannig að það er spurning hvað maður gerir,var að láta mér detta það í hug að fólk gæti gist ef það vill, en myndi þá kosta smá pen, en veit ekki kannski er það bara halló að gera það þannig..

Svo langar mig að fara fá mér tattoo, en það bara kostar pen eins og allt annað,og ekki er það ódýrt frekar en allt annað á þessu blessaða skítaskeri. Langar mest bara að flytja eitthvað útúr landi. En það kostar víst líka peninga. En það sem ég er mest pirruð yfir, er að leikskóla gjöldin hækkuðu núna fyrsta júli, en engin var látin vita af þessari hækkun, þannig að allt í einu fékk fólk rukkun umtæplega 5000kr takk fyrir!!! Við erum að tala um að ég er að vinna frá 8-5 alla daga, og þarf þá leikskólapláss á þeim tíma og var ég að borga um 42000 en núna er það 46000 tæp! Djísus fokk bara. Eins og ég sagði við vinnuveitandann minn sem var að tala um að allt væri að hækka, þá skaut ég því nú að, að launin væru ekkert að hækka, og þessi hækkun sem kom um áramótin hvarf í allar hækkanir!!

En það þýðir lítið að vera ergja sig á því.

En já ég er með nokkrar hugmyndir af tattooum, og er ég enþá bara að velta myndum og öðru fyrir mér til að skella á mig þegar ég eignast einhverntíman peninga til að safna..!!

Ef þið lesendur (ef það er eitthver) eigið uppskriftir af góðum áfengisbollum þá megið þið alveg láta mig hafa hana/þær.

Nenni ekki að blogga meira í kveld..

Veikindi, 2008 og allt hitt...Elín Dögg Arnarsdóttir

Jæja kanski komin tími á að ég bloggi aðeins..

Tók mér smá frí og held að ég sé tilbúin að byrja aftur.

Í byrjun þessa árs fór ég að vinna á leikskólanum hérna á hellu, hálfan daginn. Svo þegar ég var búin að vinna þar í svolítin tíma þá fékk ég það í hausinn að það væri ekki þörf á mér lengur þar þar sem ég var bara aukamanneskja og það væru allar stöður full mannaðar..

Þannig að ég fór að vinna í þvottahúsinu hjá tengdó og er þar enn.

Við skruppum í nokkrar útilegur þetta sumarið, byrjuðum á því að fara bara stutt. Fórum á Laugaland með Björk og Torfa og þeirra stelpum og svo voru líka Ingibjörg og Siggi vinafólk þeirra með okkur. Þetta var hin frábærasta helgi, fengum æðislegt veður og skruppum uppá Varghól til Stínu Pálu systur hennar Ingu, sem ég var einnig að vinna með á leikskólanum.

Svo um verslunarmannahelgina fórum við í þórsmörk, ætluðum að kaupa okkur hræ ódýran tjaldvagn til að fara með, en fann engan. Þannig að ég skundaði á selfoss á föstudeginum eftir vinnu og keypti það rándýrt tjald í eouropris, var búin að fara í Húsasmiðjuna allt búið þar og í byko. Þegar komið var í Mörkina tók við að tjalda þessu líka dýra tjaldi, það gekk ekki betur en svo að eftir hálftíma hugsun og klór í hausin (bar komin með blæðandi sár í hausin btw) þá bauð hjalti okkur tjaldvganinn sinn. Við þáðum það og var það ekkert smá gott að sofa þar. Um morguninn vakna ég svo, og heyri Hjalta vera tala um að það hafi kviknað í bílnum hans . (Er með dýnu á pallinum og klæddur þannig að hann geti sofið þar) Og ég skamma hann fyrir að hafa eki komið og vakið mig, þá hafði hann reynt það án árangurs. En þakka bara guði að ekki fór verr, og Hjalti hafi vaknað, því bíllinn var alveg upp við vagninn hjá okkur.

Og eftir verslunarmannahelgina var ég í viku fríi.. Nema hvað að alla dagana sem ég var í fríi var vont veður nema einn dag sem fór í það að senda sms við einn sem átti tjaldvagn fyrir lítið sem mig langaði í, um 4 leitið fórum við steinar svo alla leið í Garðinn til að sækja hann.. Tók okkur ansi marga klukkutíma að keyra þangað og aftur til baka..

Svo þegar vignir kom heim af fjöllum héldum við af stað í aðra útilega með nýja vagninn okkar. Fórum nú ekki langt, fórum í skóg sem afi hans vignirs á rétt hjá Markaskarði. Var það alveg æði, á laugardagskvöldinu fórum við svo bara í birkiflöt og gistum þar eina nótt í vagninum.

Svo var ég með bás á blómstrandi dögum, og gekk það bara vel.

Varð svo bara veik vikuna eftir það og sit enþá heima veik.

Byrjaði að á þriðjudaginn var ég búin að vera eitthvað skrítin í maganum, seinni partinn fór verkurinn að versna og var farin að verða mjög slæmur fyrir ofan mjöðmina eiginlega á bakinu. Þannig að ég píndi mig áfram þar til kl var 5 og dreif mig heim, ég átti erfitt með að labba og hreyfa mig bara. Svo tók ég verkjatöflu og lagaðist nú. Morguninn eftir þa´svimaði mig, þegar ég horfði á eitthvað sá ég bara allt í ljósi í kring og leið bara alls ekkert vel, dreif mig nú samt með börnin í leikskólann og mig í vinnuna. Á leiðinni þangað fégg ég hausverk ekki batnaði það nú. Þannig að ég pantaði tíma hjá lækni og sagði henni alla söguna og hana grunaði blöðrubólgu sem komin væri í nýrun. Og jú það reyndist rétt fór semsagt í blóðprufu og þurfti að pissa í glas fyrir hana. Og það var bullandi sýking í því. Heim með sýklalyf og hvíla mig. Gerði það, en stalst nú til að fara á laugardeginum smá á töðugjöld og landbúaðarsýningu.

Sva mætti mín galvösk í vinnu á mánudeginum og þriðjudeginum, en þá hrakaði mér líka, fór til læknis og heim með mig aftur takk og má EKKERT gera næstu daga segir hún, var send í ómskoðun á þvagblöðru og nýrum á selfoss í gær og skila inn þvag og blóðprufum, og allt það kom mjög vel út, þannig að sýkingin er farin en ekki hitinn. Ef að ég er með hita í næstu viku á ég að fara til læknis aftur.

Svo er þetta á svo heppilegum tíma að það er ekki einu sinni sniðugt, var búin að ákveða að vera með bás á sandgerðisdögum, en nei ég skal bara gjöra svo vel að vera heima og gera ekki rassgat. Hefði nú kannski stolist ef verðið væri töluvert betra!

En þýðir ekki að væla yfir því, nenni ekki að vera heima lengur þannig að það er eins gott að hlýða lækninum..

Svo aðeins í lokin langar mig að segja að það hefur aðeins fjölgað á heilmilinu. Það fæddust 3 hvolpar þann 16 ágúst, þannig að hún Elísabet frænka fékk þá í afmælisgjöf. Allir þvílík bjútí!!

Bless í bili vona að það lýða ekki margir mánuðir aftur á milli blogga hjá mér.. Megið líka skilja eftir smá spor..

JólakveđjaElín Dögg Arnarsdóttir

Kæru lesendur.

Megi guð gefa ykkur gleðileg jól

og gæfuríkt komandi ár

þakka ''kvittin'' á líðandi ári.

Með jólakveðju

Elín og CoKoss


Gleđileg jól!!Elín Dögg Arnarsdóttir

Já það fer að líða að jólum.. Tíminn er alltof fljótur að líða!

Við erum að fara á jólahlaðborð á eftir, á Geysi mig er ú farið að hlakka pínu til að fara borða góðan mat, og fá mér pínu í aðra tánna, komin langur tími síðan síðast!

En allt gengur sinn vanagang hérna í sveitinni, við 3 erum alltaf í leikskólanum, og gengur það bara vel, og er D allur að koma til, ég mátti ekki lýta af honum fyrstu dagana, þá var hann farin að grenja, en núna er hann farið að leika sér og kippir sér ekkert upp við það þegar ég fer í kaffi. Eða er inná fíladeildinni..

Svo fer að líða að jólahlaðborði í minni vinnu, og verður sennilega farið í Árhús, og það verður vonandi bara æði! En það er svolítil tilbreyting að vera komin í vinnu, verð ég að segja, og líkar mér bara vel þar.

Svo er ég ekki enn farin að skreyta, ætla nota morgundaginn í að þrífa og byrja setja eitthvað skraut upp.. Er samt enganvegin að nenna því, ef ég á að segja alveg eins og er! Og svo það "skemmtilegasta" er eftir, það er að fara í bæinn og verlsa jólagjafir Öskrandi Á næsta ári er stefnan tekin á sólarlöndin og vera þar yfir jólin, og sleppa þessu jólahvað dótaríi!! (alltaf gott að láta sig dreyma er það ekki)

Búðin gengur bara vel, og við erum sátt, er það ekki fyrir öllu! Endilega kíkið á síðuna hjá búðinni, er ennþá í vinnslu www.helludyr.net

Nenni ekki meir í bili!!

Og takk fyrir afmæliskveðjuna Hulda! Koss

Nú verđa skrifađar fréttir!!!Elín Dögg Arnarsdóttir

Jæja... Er einhver sem les bloggið mitt.. Ef svo er þá vil ég sönnun!! Allir að kvitta fyrir sig..


En allavega þá skal ég segja ykkur fréttir af okkur í sveitinni, ég er að fara vinna með dýrabúðinni, og kom þetta bara upp á fim. og fór ég í smá prufu á föst, og byrja svo að vinna á mánud.

Ekki lengi að gerast.. En þetta er á leikskólanum..

Þannig að Daníel er að fara á leikskóla..


Þetta byrjaði ekkert voðalega vel á föst, mátti ekki lýta af D þá var hann farin að gráta, og S vildi bara vera á Bangsadeild, en er á fíladeild.. Svo var D farin að stinga mig af í restina, og S ætlaði ekki að hleypa mér heim...


En annars er alltaf same old hérna megin.. Heima, afgreiða, sinna börnum, borða, horfa smá á TV og svo bara sofa!!


Mér leiðist svo mikið núna, ég er að spá í að fara baka bara...


Muna svo að kvitta...


Jćja...Elín Dögg Arnarsdóttir

Já, héðan er allt gott að frétta! Gengur þokkalega með búðina..

Skrapp í Verahvergi á laugardaginn, með Africu í klippingu, hún er bara allt önnur!! Svo sæt og fín, S þekkti hana ekki einu sinni þegar ég kom með hana heim, og spurði mig hvaða hundur þetta væri og hvar hún Africa sín væri Hlæjandi

Ef ég hefði verið búin að fara með hana í síðasta mánuði og séð hvað hún er komin með síðan feld hefði ég skráð hana á sýninguna.. En ég sýni hana pottþétt í mars. Strax farið að hlakka til, og það eru 5 mánuðir í það. Svo er ég að vona að D komist á leikskólann í janúar, en ég er ekkert að stressa mig því ég vinn hvorteð er heima.. Við buðum tengdó í mat á sunnudaginn og það heppnaðist svona líka bara vel.

Mig langar svo að fara í bæinn um helginal, það er bara verst að undanfarið hef ég farið svo mikið eitthvað um helgar að ég veit ekki hvað ég geri. Langar að sjá Am. cockerinn á sýningunni.. Og kaupa mér snyrtiborð svo ég geti haldið Afrícu flókalausri. Þannig að ef einhver vill koma með mér endilega bara bjalla í mig. Veit ekki hvort að V komi með, en ég hef grun um að honum langi nú að koma!! Hrfí sýningin stækkar með hverri sýningunni, og núna er þetta stæðsta sýningin sem hefur verið haldin hérna á landi, á 800 hundar eru skráðir til leiks!! Hefði sko alveg verið til í að sýna, og aldrei að vita nema ég nái að plata Berglindi frænku til að sýna Mána, enska cockerinn sem ég sýndi í mars..

Jæja nóg um hundatal og sýningar, og bara nóg í bili!!

Væri svo alveg til í að fá kvitt!!






Blogg...Elín Dögg Arnarsdóttir

Veit aldrei hvað ég á að setja í fyrirsögn.. En það er nú ekki aðalmálið, við verðum í bænum alla helgina, því fyrirtækið mitt verður með bás á Rex hundasýningunni. Og ef fólk hefur áhuga er öllum velkomið að kíka, þetta verður í Andvara í garðabæ..

En það er allt gott að frétta hérna megin, nema sigurbjörg var lasin nánast alla síðustu viku, kom heim á föstudegi með bullandi hita, og fór í leikskólann aftur á föstudegi vikuna á eftir, svo er hringt í mig á þriðjudaginn og mér tilkynnt að S var komin með hita aftur. Þannig að hún er búin að vera heima með mér, og ég ætla nú ekkert að fara með hana í leikskólann á morgun. Ætla ekki að fá hana veika heim aftur í næstu viku.

Daníel er bara alltaf sami engillinn, er svolítill tætari.. En það er bara aldurinn og þetta fylgir bara.. Hann er hættur með pela sem er bara gott mál, og þá er það bara snuddan. Tek hana nú ekki alveg strax af honum..

En ég var að reyna setja myndir inn í gær, en það er bara ekki alveg að gera sig, þarf að byrja strax og ég vakna þá er kannski komið inn um kvöldmat.. En það komust inn 4myndir.. Ég verð bara að taka heillann dag í þetta, þegar ég hef nóg af tíma..

Sjáumst svo vanandi einhverntíman.. þið sem lesið viljið þið nú skilja eftir smá spor Glottandi

Jćja..Elín Dögg Arnarsdóttir

Jæja ætla bara koma með eina stutta færslu í dag. Þetta gekk nú svona lala í gær, hefði viljað sjá fleyri sem ég þekki. En ég kenni ljósanótt um. Þannig að við vonum bara að þetta gangi hjá okkur. En ef þetta gengur ekki þá bara gengur þetta ekki!! Ekkert flóknara en það. En ég er svosem ekkert svartsýn á það.

Hófí er komin til landsins, og er ég að fara í heimsókn til hennar á eftir. Smá Skírnaveisla. Það var alveg æðislegt að sjá hana hérna í gær, þegar hún kom á opnunina. Og bara takk fyrir komuna Hófí og Hera bjútý Koss

En annars veit ég ekki hvað ég á að segja meira, Sigurbjörg er lasin núna og kom svoleiðis heim á föstudaginn úr leikskólanum, Daníel er alltaf jafn hress, og labbar hér um allt eins og herforingi. Búin að brjóta eitt glas og lampa sem ég fékk í jólagjöf. En svo ætla ég bara að vona að mínir vinir og ættingjar sýni smá lit og kíki á mig hvort sem það verður í vikunni eða um helgina eða hvernig sem það verður. Þið þurfið ekkert að versla neitt... Verð samt sennilega að vera með lokað helgina 16-17 því við verðum með bás á Hundasýningunni hjá hundafélaginu Rex. Allir að kíkja þangað Glottandi

Og svo megið þið alveg vera dugleg að láta þetta berast. Hvort sem það sé hérna eða þarna.. Hahah ég er svo fyndin...

Nenni ekki að skrifa meir, ætla fara gera mig sæta fyrir stelpurnar!!



Þetta var nú ekkert eins stutt eins og ég átti von á Hissa

Helludýr!!!!!!!Elín Dögg Arnarsdóttir


Gæludýraeigendur A.T.H

Helludýr er gæludýraverslun sem opnar næstkomandi laugardag (1 sept)  Kl 11 til 18

Við erum með allar nayðsynjar sem þarf fyrir gæludýrið þitt.

Erum með smáhundaföt á góðu verði.

Og hágæðafóðrið fyrir hunda og ketti frá Royal Canin

Opnunartími verður svo

Mán- föst frá 11-18

Lau frá 12-16

Kv. Elín og Vignir.

Erum staðsett í Bogatúni 26 í bílskúrnum.

Sími 487-1523 og 867-6000


Endilega mæta og fagna þessu með mér, langþráður draumur að rætast!!

Annars er voðalega lítið að frétta, búin að vera á fullu síðan við ákváðum þetta, nú er bara að opna og byrja!!



blogg....Elín Dögg Arnarsdóttir

Ætli það sé ekki komin tími til að blogga smá??

Það er svosum ekki mikið að frétta hérna hjá okkur, við fórum í brúðkaup í gær sem var æðislegt í alla staði :) Diddi frændi hans V og konan hans hún Sirir gengu í það heilaga. Innilega til hamingju með það pg takk fyrir okkur!!

Annars er lítið annað að frétta. Daníel orðin eins árs, og ætlum við að reyna að halda uppá afmælið hjá þeim báðum um næstu helgi. Eigum reyndar eftir að ákveða þetta betur. Læt ykkur vita þegar búið er að ákveða þetta allt.

Svo förum við í bústað um versló og vikuna þar á eftir Hlæjandi Og á föstudeginum förum við í viðtal í leikskólanum á laugalandi. Daníel kemst þar inn á mánudeginum. Svo verður brunað beint á Blönduós í 50 ára afmæli hjá Bóbó frænda... Og sumarið er svo bara að vera búið. Jú og svo má ekki gleyma Töðugjöldunum helgina eftir það eða 16-17-18 ágúst held ég, það verður reyndar heldið uppá 80 ára afmæli Hellu. Þannig að allir að mæta og skemmta sér Hlæjandi

Ég ætla svo í vikunni að skella inn myndum hingað inn. líka fyrst að ég er komin með nýja vél þá er svo gaman að taka myndir. Og ég hef eiginlega ekki gert annað síðan að ég fékk hana... Ég ætla líka ekkert að vera opna síðurnar inná barnalandi, ætla frekar að vera hérna frítt. Enda skrifa ég meira hérna heldur en í vefdagbækurnar hjá börnunum.

Við mamma fórum í sund með krakkana í vikunni sem leið og D fannst það svo gaman, en S var ekki eins hress fyrr en við vorum að fara.

Blessó!!
Síđa 1 af 4

Prófíll

A.T.H!!!

Muna ađ kvitta fyrir komunni, svo ég sjá nú hverjir lesa hérna!!!

Börnin

Bloggarar

Könnun

Er ţér illa viđ hunda?

Heimasíđur sem ég skođa :)

Gagnasafn